Um félagið

Ljónshjarta eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Þau voru stofnuð 28. nóvember 2013.
Makamissir í blóma lífsins er eitt mesta áfall sem hægt er að verða fyrir á lífsleiðinni. Það tekur mjög á að vera í djúpri sorg og sinna á sama tíma börnum og heimili. Því er mikilvægt að geta fengið aðstoð við að átta sig á hvernig ráðlegast er að gera hlutina og finna á einum stað upplýsingar um réttindi sín í kerfinu og leiðir í sorgarvinnu fullorðinna og barna. Síðast en ekki síst finnst flestum mjög hjálplegt að fá að komast í kynni við og hitta fólk í sömu sporum, finna skilning og stuðning hjá þeim sem þekkja af eigin reynslu hvað við er að etja.
Markmið okkar er að styðja við bakið á yngra fólki eftir makamissi og vera vettvangur þar sem fólk getur hjálpað hvert öðru í sorg. Starfið felst meðal annars í að halda úti heimasíðu með ýmis konar fræðsluefni og efna til  samverustunda þar sem fullorðnir, unglingar og yngri börn hittast og eiga góða stund saman.

Við erum með lokaðan hóp á Facebook fyrir þá sem hafa misst maka.

ljonshjarta@ljonshjarta.is