Góð ráð í sorg fyrir aðstandendur syrgjanda

Hvað get ég gert til hjálpar þeim sem hafa misst?

Hér á eftir koma nokkrir punktar sem við sem sjálf höfum misst maka tókum saman til þess að svara því hvernig þau sem standa í kringum syrgjanda geta komið honum til hjálpar. Það fyrsta sem þú ættir að gera er að skoða tengsl þín við þann sem var að missa ástvin. Ertu náinn vinur, kunningi, ættingi eða jafnvel foreldri bestu vina barnanna? Þau síðasttöldu eru afar mikilvæg og geta veitt mikla hjálp því börnin vilja helst vera hjá fjölskyldu sinni eða bestu vinum. Verið því dugleg að bjóða fram aðstoð með börnin.

Þegar einstaklingur hefur nýlega misst maka er líklegt að hann vilji eingöngu umgangast sína allra nánustu fyrst eftir dauðsfallið. En oft vitum við ekki í hvaða hring við erum gagnvart syrgjandanum eða hversu nálægt við ættum að koma. Erum við í innsta hring; nánustu vinir og fjölskylda? Eða erum við í næsta hring; félagar og góðir kunningjar? Erum við enn fjær; fjarskyldari ættingjar eða málkunnugt fólk?

Hér á eftir eru nokkrar hugmyndir um hvað þú getur gert til að styðja við bakið á þeim sem hefur misst maka. Farðu samt varlega, það er mikilvægast af öllu að virða næði og persónulegt rými hvers og eins. Við erum öll ólík og það sem gæti hentað einum er jafnvel óþægileg upplifun fyrir annan. Mikilvægt er að bjóða aðstoðina og fá leyfi syrgjandans fyrir því sem þig langar að gera. Oft er best að byrja á að tala við nánasta aðstandanda syrgjandans og bera hugmyndina undir hann.

 

Innsti hringur

Fyrst eftir missi er gott að:

  • Koma og vera hjá þeim sem hefur misst. Ekki vera gestur, vertu bara á staðnum, syrgjandinn hefur ekki orku í miklar samræður eða taka á móti gestum.
  • Hringja í þann sem hefur misst.
  • Bjóða fram aðstoð við undirbúning á jarðarför og öllu sem því fylgir.
  • Koma með tilbúinn mat.
  • Fara í búðina og versla það sem vantar.
  • Fara með börnin í og úr skóla/leikskóla.
  • Taka að þér að kanna réttindi og tryggingamál, sækja um útfararstyrk hjá stéttarfélagi hins látna.
  • Hjálpa með bílamálin, smurningu, skoðun, þrif o.fl.
  • Koma og sinna börnunum. Ef þau vilja ekki fara út með þér vertu þá á staðnum og leiktu við þau.
  • Koma á staðinn og elda fyrir fjölskylduna.
  • Bjóða syrgjandanum með þér út í göngutúr, á tónleika, út að borða, í nudd o.fl.
  • Taka að þér þvottinn um stund. Farðu með óhreina tauið heim til þín og skilaðu því aftur tilbúnu í skápana.
  • Þrífa heimilið, ágætt fyrir vinahópinn að gera það saman. Sendu syrgjandann í dekur á meðan. Gættu þess samt að taka ekki yfir í löngun þinni til að hjálpa og virða alltaf mörk syrgjandans.

 

Næsti hringur

  • Hringja eða senda tölvupóst eða kveðju á Facebook. Ekki skrifa kveðjuna á vegginn, einkaskilaboð eru persónulegri.
  • Fara í búðina eða bakaríið. Hengdu eitthvað gotterí á húninn og sendu svo sms í símann um að það sé komin sending.
  • Bjóða fram aðstoð með börnin eða gæludýrið á heimilinu. EKKI segja: ,,Ég er til staðar ef þú vilt fá hjálp, þú getur alltaf hringt.” Það er mjög ólíklegt að syrgjandinn hringi í aðra og kalli eftir aðstoð. Hann er mjög berskjaldaður og meyr vegna áfallsins sem hann hefur orðið fyrir og það kostar mikið átak að biðja um hjálp í þessari stöðu. Segðu frekar t.d.: ,,Mig langar að fá börnin lánuð á laugardaginn og gera eitthvað með þeim. Get ég komið kl. 14 og sótt þau? Hvaða tími hentar þér?”
  • Taka til í garðinum. Það er sniðugt fyrir vinahópinn að taka sig saman og gera garðinn fínan.
  • Moka tröppurnar.
  • Taka bílinn og þrífa hann að innan og utan.
  • Baka. Gott er fyrir syrgjanda að eiga eitthvað þegar fólk kemur í heimsókn.

 

Ysti hringur

  • Vera þolinmóð/ur og skilningsrík/ur. Syrgjandi hefur ekki orku í að umgangast of mikið af fólki, það er ótrúlega lýjandi að vera í sorg. Það er eðlilegt að hann leyfi sínum nánustu að sinna sér að mestu fyrsta árið. Ekki hætta samt að láta vita af þér.
  • Senda tölvupóst eða kveðju á Facebook. Ekki á vegginn, einkaskilaboð eru persónulegri. Það er alltaf gott að vita af kunningjum og ættingjum sem hugsa fallega til manns.
  • Senda börnunum gjafabréf í bíó, leikhús eða annað í pósti. Það er alltaf gaman fyrir þau að fá glaðning inn um lúguna.
  • Mikilvægt er að við látum öll vita af okkur reglulega með kveðjum í tölvupósti, sms eða með því að hringja. Fyrstu tvö árin eru oftast erfiðust. Ekki hverfa eftir jarðarförina, haltu áfram að láta vita af þér og bjóða aðstoð og samskipti.